Afhending vöru & sendingarkostnaður:
Þegar vörur eru keyptar í vefverslun Óskabanda má velja hvort þær eru sendar með Póstinum eða hvort viðkomandi sæki þær á vinnustofu okkar í Þrúðsölum 17 í Kópavogi.
Eftir að greiðsla hefur borist getur það tekið 2-4 virka daga að afhenda vöruna sé hún send í pósti en sá tími getur breyst með tilliti til þess hvar á landinu kaupandi er staðsettur.
Ofangreint á aðeins við um sendingar innanlands. Til þess að fá upplýsingar um sendingar á vörum til annarra landa má hafa samband á oskabond@oskabond.is eða í síma 696-0060
Greiðslur:
Hægt er að greiða með millifærslu eða í gegnum greiðslusíðu PEI. Sé óskað eftir öðrum greiðslumöguleika hafið þá samband við okkur á netfangiðoskabond@oskabond.is
Verð:
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.
Sérpantanir & fyrirspurnir:
Vörurnar hjá Óskaböndum eru flestar handgerðar og mismunandi hvernig útgáfa af vörunni er til hverju sinni. Það má alltaf senda okkur fyrirspurn á oskabond@oskabond.is eða hringja í síma 696 0060 ef áhugi er fyrir vöru sem ekki er aðgengileg í vefverslun.
Ef kaupandi hættir við:
Kaupandi hefur 14 daga frá pöntun til þess að hætta við kaupin að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð, henni sé skilað í sama ástandi og hún var send og hún sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Þegar kaupandi hefur hætt við kaupin getur hann skipt vörunni í aðra vöru eða fengið inneignarnótu hjá Óskaböndum. Sendingarkostnaður er óafturkræfur.
Annað:
Ef þig vantar svar við spurningu eða spurningum sem ekki er svarað á þessari síðu bendum við þér vinsamlegast að senda tölvupóst á oskabond@oskabond.is