Afhending vöru & sendingarkostnaður:
Þegar vörur eru keyptar í vefverslun Óskabanda má velja hvort þær eru sendar með Póstinum eða hvort viðkomandi sæki þær á vinnustofu okkar í Þrúðsölum 17 í Kópavogi.
Eftir að greiðsla hefur borist getur það tekið 2-4 virka daga að afhenda vöruna sé hún send í pósti en sá tími getur breyst með tilliti til þess hvar á landinu kaupandi er staðsettur.
Ofangreint á aðeins við um sendingar innanlands. Til þess að fá upplýsingar um sendingar á vörum til annarra landa má hafa samband á oskabond@oskabond.is eða í síma 696-0060
Greiðslur:
Hægt er að greiða með millifærslu, Netgíró eða í gegnum greiðslusíðu PEI. Sé óskað eftir öðrum greiðslumöguleika hafið þá samband við okkur á netfangiðoskabond@oskabond.is
Verð:
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.
Sérpantanir & fyrirspurnir:
Vörurnar hjá Óskaböndum eru flestar handgerðar og mismunandi hvernig útgáfa af vörunni er til hverju sinni. Það má alltaf senda okkur fyrirspurn á oskabond@oskabond.is eða hringja í síma 696 0060 ef áhugi er fyrir vöru sem ekki er aðgengileg í vefverslun.
Ef kaupandi hættir við:
- Kaupandi hefur kost á að skila vöru innan 30 daga frá kaupum.
- Þá gefst honum möguleiki að skipta út fyrir aðra vöru eða fá endurgreitt.
- Ef um vefsölu er að ræða ber kaupandi kostnað við að skila vöru, nema um galla sé að ræða.
- Endurgreiðsla er gerð innan 14 daga frá því að vara berst til baka.
Gallar og lögbundin úrræði kaupenda:
Ef vara reynist gölluð og gallinn ekki sök kaupenda hefur hann val um að:
- Halda eftir greiðslu kaupverðs
- Velja milli úrbóta eða nýrrar afhendingar
- Krefjast afsláttar
- Krafist riftunar og fallið frá samning
- Krafist skaðabóta
Ef varan reynist gölluð ber kaupenda að upplýsa Óskabönd um gallann og hefur hann allt að tveggja ára frest til þess.
- Sé ekki hægt að komast að niðurstöðu er kaupendum bent á kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
- Hægt er að senda kvörtun til nefndarinnar með rafrænum hætti hér: https://www.kvth.is/#/
- Einnig er hægt að hringja í kærunefnd í síma 5101125 á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 10 – 12.
- Kærunefndin er staðsett í Borgartúni 29, 105 Reykjavík.
Réttur kaupenda til að falla frá samningi
- Kaupandi hefur 14 daga frá þeim degi er varan berst kaupanda rétt til að falla frá samningi skv. lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga.
- Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem er nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.
- Kaupandi skal tilkynna Óskaböndum ákvörðun sína um að falla frá samningi áður en fresturinn til að falla frá honum rennur út. Kaupandi telst hafa tilkynnt seljanda um ákvörðun sína ef tilkynning er send áður en fresturinn rennur út.
- Kaupandi getur tilkynnt Óskaböndum um ákvörðun sína munnlega eða skriflega í tölvupósti á oskabond@oskabond.is.
- Óskabönd ehf. endurgreiðir kaupanda innan við 14 daga eftir þann dag þegar tilkynning berst um ákvörðun kaupanda um að falla frá samningnum.
- Ef um vefsölu er að ræða og kaupandi hefur fengið vöruna í hendurnar skal kaupandi bera kostnað af endursendingu vörunnar til Óskabanda.
Kaupenda býðst einnig að fylla út staðlað eyðublað með yfirlýsingu um að falla frá samningi:
Staðlað eyðublað með yfirlýsingu um að fallið sé frá samningi.
(fylltu út og sendu seljanda þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum)
Viðskiptaskilmálar:
Skilmálarnir eru settir fram í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Frekari réttarúrræði má finna í lögunum.
Lög nr. 48/2003 um neytendakaup
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html
Lög nr. 16/2016 um neytendasamninga
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html
Persónuvernd:
- Óskabönd ehf. fer með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál og þær einungis nýttar til að ganga frá viðskiptum.
- Engar persónuupplýsingar eru látnar í té þriðja aðila.
Annað:
Ef þig vantar svar við spurningu eða spurningum sem ekki er svarað á þessari síðu bendum við þér vinsamlegast að senda tölvupóst á oskabond@oskabond.is